Gerir Bónus þjóðinni gagn?
Í aprílmánuði árið 1989 opnaði Bónus sína fyrstu verslun. Það ár fór 23,5% af ráðstöfunartekjum heimila í matvöru samkvæmt opinberum gögnum. Í kjölfar opnunar Bónus lækkaði matvöruverð á Íslandi um a.m.k. 15%. Viðskiptavinir voru ánægðir með lægra verð á matvöru og fyrirtækinu óx fiskur um hrygg. Ljóst er að aðilar sem misstu hlutdeild eða tekjur við þessar breytingar á matvörumarkaði voru óánægðir. Í þeim hópi voru áberandi nokkrir heildsalar.
Starfsfólk Bónus, sem nú nálgast sjöunda hundraðið hefur staðið vaktina frá fyrsta degi og boðið lægsta matvöruverð landsins hvern einasta dag. Ekki má gleyma að verðlag matvöru á landsbyggðinni hefur lækkað og er nú það sama og á höfuðborgarsvæðinu þar sem verslanir Haga starfa. Fyrirtækið hefur náð stórkostlegum árangri og nú er svo komið að einungis 15% af ráðstöfunarfé heimilanna fer til kaupa á matvöru. Á þessum árum hefur hið opinbera ekki lækkað álögur á matvöru svo neinu nemi.
Bónus er innan fyrirtækisins Haga, sem áður hér Baugur. En auk Bónus er m.a. Hagkaup og 10-11 innan Haga. Hagkaup býður m.a. lægsta verð landsins á fatnaði, skóm, leikföngum, snyrtivöru og skemmtiefni. Fyrirtæki Haga hafa verið leiðandi á ýmsum sviðum og notið velvildar viðskiptavina í ríkum mæli. Viðskiptavinir þessara fyrirtækja hafa valið að eiga við þau viðskipti vegna þess að þau bjóða ýmist, lægsta verðið, besta vöruúrvalið, bestu þjónustuna, langan opnunartíma eða annað það sem viðskiptavinirnir kjósa. Enginn er þar þvingaður til viðskipta.
Ásta Möller er þingmaður, sem jafnframt rekur einkafyrirtæki, sem selur ríkinu þjónustu. Á þinginu vinnur hún að því að móta lög og reglur um hvernig ríkið skuli kaupa af henni þjónustuna. Ekki virðist hún hafa áhyggjur af því fyrirkomulagi, en þungar áhyggjur hefur hún af því að þjóðin geti gert innkaup sín í Bónus. Í þessu samhengi er rétt að minna á að Ásta er eiginkona fyrrum formanns gamla heildsalafélagsins, sem hefur beitt sér í ræðu og riti gegn Baugi.
Í fyrirspurnartíma á alþingi og í fjölmiðlum sagði Ásta Möller að “hér á landi ríki einhvers konar ribbaldakapitalismi eins og í Rússlandi á frumskeiði markaðsvæðingar. Þetta sagði hún í ljósi þess að hér ríkti einokun á matvörumarkaði þar sem Baugur hefði hér rúmlega 60 prósenta markaðshlutdeild”. Auk þess sagði hún að “ef Bretar kalla markaðshlutdeild Tesco einokun, hvaða orð getum við þá notað um markaðsstöðu Baugs”.
Gífuryrðin í okkar garð, læt ég liggja á milli hluta, en rétt að skoða þær staðreyndir sem fram koma hjá þingkonunni. Í fyrsta lagi væri fróðlegt að Ásta tilgreindi þá Breta sem telja að Tesco sé með einokun. Í öðru lagi væri gott að Ásta staðfesti að hún hefði ekki mismælt sig þegar hún segir að hér ríki einokun á matvörumarkaði. Í þriðja lagi er rétt að Ásta leggi fram gögn sem staðfesti rúmlega 60% markaðshlutdeild Haga á matvörumarkaði á Íslandi. Samkvæmt minni bestu vitund er markaðshlutdeild Haga nokkuð lægri.
Það er athyglisvert að Ásta notar sömu markaðshlutdeildartölu og Kjartan Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Sjálfstæðisflokksins notaði í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils. Frægt er orðið að Kjartan var þátttakandi í atlögu að fyrirtækinu og markmið hans þar öllum ljóst. Hvort Ásta sækir í sömu heimildir eða hafi sömu markmið, skal ósagt látið.
Svar viðskiptaráðherra, að það séu samkeppnislög í landinu er eðlilegt og að mínu viti gott. Ég hef haldið því fram að enginn markaður á Íslandi hafi verið undir jafnmiklu eftirliti undanfarin ár og matvörumarkaðurinn. Yfir honum eru vökul augu samkeppniseftirlits, neytendasamtaka, launþegasamtaka, fjölmiðla, keppinauta og ekki síst viðskiptavina. Afkoma fyrirtækja á matvörumarkaði ber það með sér að verðlækkun verður ekki sótt í álagningu matvöruverslana.
Viðskiptavinir hafa kosið að eiga viðskipti við Haga. Á meðan við höldum vöku okkar getum við áfram átt ánægða viðskiptavini. Ef við hverfum af þeirri braut, fara viðskiptavinirnir einfaldlega annað.
Tesco var ekki stærsta verslunarkeðja Bretlands fyrir 10 árum og Bónus var ekki stórt fyrirtæki fyrir rúmum 10 árum. Skýr stefna Bónus í 16 ár, hefur lagt grunninn að velgengni fyrirtækisins. Þar hafa viðskiptavinir hvern einasta dag fengið lægsta matvöruverði á Íslandi.
Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónus hefur ítrekað hlotið viðurkenningar frá óháðum samtökum. Stöðugt berast óskir frá einstaklingum víða um land um að Bónus opni þar verslun. Enda fannst mér skemmtilegt að hugleiða spurninguna sem starfsmaður Bónus spurði mig í dag, hvort hefur þjóðin meira gagn af Ástu Möller eða Bónus?
Ásta Möller ætti að vita að það eru viðskiptavinir okkar sem eiga stærstan þátt í því að fyrirtækið hefur vaxið. Þeir eru vel upplýstir og velja þann kost sem býður best hverju sinni. Fyrirtæki Haga hafa verið trú stefnu sinni og njóta mikils trausts á meðal viðskiptavina sinna. Staðfesting á því er að Bónus hefur verið valið vinsælasta fyrirtæki ársins af þjóðinni nokkur ár í röð.
Finnur Árnason
Forstjóri Haga
Grein þessi birtist í Fréttablaðinu 8. desember 2005
