24. okt. 2002

Tryggvi Jónsson lætur af störfum sem forstjóri Baugur Group

Tryggvi Jónsson mun láta af störfum sem forstjóri Baugur Group frá og með 1. nóvember nk. í kjölfar þess að hann og fleiri fjárfestar hafa gert tilboð í meirihluta hlutafjár í Heklu hf.

Jón Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Baugur ID, mun gegna starfi forstjóra Baugur Group fram að næsta hluthafafundi sem haldinn verður 20. nóvember nk. Stjórn fyrirtækisins stefnir að því að ráða Jón Ásgeir Jóhannesson sem forstjóra í stað Tryggva á hluthafafundinum.  Jón Ásgeir hefur verið starfandi stjórnarformaður félagsins frá síðasta aðalfundi þess. Þá er það stefna stærstu hluthafa að Hreinn Loftsson, hrl., verði kjörinn í stjórn Baugur Group á þessum fundi og taki við stjórnaformennskunni  af Jóni Ásgeiri.

Stjórn Baugur Group vill nota þetta tækifæri til að þakka Tryggva Jónssyni, fráfarandi forstjóra, fyrir vel unnin störf og óskar honum alls velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Stjórnin mun auglýsa hluthafafund á næstu dögum.





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica