7. okt. 2008

Hagar fagna ákvörðun stjórnvalda.

Fréttatilkynning:

Hagar fagna ákvörðun stjórnvalda um að gengi krónunnar sé fest tímabundið og aðgangur að gjaldeyri sé tryggður.  Það er von Haga að þessi aðgerð leiði síðan til styrkingar íslensku krónunnar, þannig að verðbólguþróun undanfarna mánuði snúist í verðhjöðnun.

Aðgerðin mun leggja grunn að eðlilegum viðskiptum með innfluttar vörur og koma í veg fyrir þær gríðarlegu verðhækkanir, sem voru yfirvofandi.  Það er trú Haga að aðgerðin stuðli að stöðugleika, sem er nauðsynlegur Íslenskum fyrirtækjum.

Finnur Árnason
Forstjóri / CEO





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica