5. sep. 2008

Verðmælingar ASÍ

Í grein í Fréttablaðinu sl. föstudag sakar Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ mig um að hafa ekki áttað mig á því, um hvað matsmál Haga gegn ASÍ hafi snúist.  Þó svo að ég hafi átt frumkvæði að málinu.  Matsmálið var höfðað, þar sem Hagar hf. hafa talið að verðmælingar ASÍ endurpegluðu ekki raunverulegar verðbreytingar í verslunum Haga hf.. Niðurstaða matsmannanna var afdráttarlaus þess efnis að í tilviki 10-11 um mánaðarmótin febrúar/mars 2007 gaf verðmæling ASÍ ranga niðurstöðu.

Niðurstaða matsmannanna sýnir að verðlagsmælingar ASÍ ná ekki því markmiði sínu að meta raunverðbreytingar.  Skýringuna er sennilega að finna í leyndaraðferðarfræði ASÍ við gerð mælinganna, en ASÍ hefur neitað að upplýsa um hver hún er. Augljóst er hins vegar að sú aðferðarfærði er langt frá því að vera nógu nákvæm.

Einnig hefur ASÍ reynt að gera lítið úr vinnu matsmanna þar sem þeir hafi skoðað "eigin gögn" Haga, þ.e. gögn frá 10-11.  ASÍ byggir verðkannanir sýnar á gögnum fengnum í 10-11.  Markmiðið er að upplýsa neytendur um verðlag þar.  Ég veit ekki hvar annars staðar ætti að leita að gögnum, né hvar annars staðar hina einu réttu niðurstöðu er að finna. 

Um þetta snýst matsmálið og ekkert annað. Það er merkilegt að í stað þess að taka til í eigin ranni.  Breyta aðferðarfræði sinni við verðmælingar, þannig að þær endurspegli raunverulegar verðbreytingar í verslunum á matvörumarkaði.  Bregst forysta ASÍ við með rangfærslum og útúrsnúningum.  Það ætti að vekja ráðamenn, sem hafa veitt opinberu fé til verðlagseftirlitsins til umhugsunar um trúverðugleika þess.

Finnur Árnason, höfundur er forstjóri Haga hf.





Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica