Hagkaup Garðabæ Ný og betri búð
Fimmtudaginn 12. júní kl 10:00 mun Hagkaup opna glæsilega stórverslun í Garðabæ. Með opnun verslunarinnar festir Hagkaup sig enn frekar í sessi sem leiðandi aðili á smásölumarkaði þar sem Íslendingar versla allt í einni ferð og spara sér sporin.
Hagkaup Garðabæ mun skarta því besta sem Hagkaup hefur upp á að bjóða í matvöru og sérvöru. Í versluninni verður að finna rúmlega 50 þúsund vörunúmer, en Hagkaup býður árlega rúmlega 60 þúsund vörunúmer sem er mesta úrval sem ein verslun býður uppá hérlendis og þótt víðar væri leitað. Þess má geta að verslunarflötur í nýrri verslun ríflega tvöfaldast miðað við eldri verslun.
Það er eins og að bera saman dag við nótt þegar nýja verslunin er borin saman við þá eldri. Umhverfi, aðgengi og vöruval eru með allt öðrum hætti þannig að viðskiptavinir geti sannarlega gert öll sín innkaup í einni ferð og á betra verði.
