BÓNUS GEFUR 25 MILLJÓNIR
Reykjavík 3. desember 2007.
- Blaðamannafundur í Bónus í Garðabæ (Kauptúni 1, á móti IKEA) þriðjudaginn 4. des. kl. 14:00.
Bónus færir nú Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavík-ur, Kópavogs, Hafnarfjarðar og Akureyrar 25 milljónir króna að gjöf.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og Hjálparstarf kirkjunnar, munu eins og liðin ár taka höndum saman um jólaaðstoð í Reykjavík og á landsbyggðinni og fer meginhluti fjárins í það verkefni. Vegna sérstakra óska til Bónus var ákveðið að eyrnamerkja ákveðnar upphæðir til mæðrastyrksnefndanna í Hafnarfirði, Kópavogi og á Akureyri svo þær gætu sjálfar séð um aðstoð í sínum bæjarfélögum.
Féð verður notað til að aðstoða þá sem við bágust kjör búa nú þegar jólahátíðin er framundan. Hjálparstarf kirkjunnar mun vinna með prestum og fagfólki á landsbyggðinni að úthlutun þar.
Samtals verða gefin út 5.000 gjafakort frá verslunum Bónuss, hvert að andvirði 5.000 krónur. Gjafakortin eru nú í fyrsta skipti rafræn og eru því notuð eins og debetkort með 5000 kr. inneign. Handhafar kortanna geta keypt vörur að eigin vali í Bónus.
Forsvarsmenn Bónuss treysta Hjálparstarfi kirkjunnar og mæðrastyrks-nefndunum til að ráðstafa gjafakortunum til þeirra íslensku heimila sem mest þurfa á aðstoð að halda.
Á liðnum fimm árum hefur Bónus gefið þessum félögum 91 milljón króna. Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónusi, segir að honum sé vel ljóst að neyðin sé víða mikil hjá fjölskyldum um land allt. Hann segir að eigendum og stjórnendum fyrirtækisins sé mikils virði að geta látið gott af sér leiða. Bónus hafi notið mikillar velgengni og velvildar í gegnum árin og fyrir það sé vert að þakka með þessum hætti.
Nánari upplýsingar gefa:
Jóhannes Jónsson í síma 894-1777.
Vilborg Oddsdóttir, umsjónarmaður innnlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar, í símum 562-4400 og 823-2321.
Aðalheiður Franzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, í síma 551-4349.
