Sérvörumarkaður í Smáratorgi
Bónus hefur opnað risa sérvörumarkað á Smáratorginu. Markaðurinn er við hlið Bónusverslunarinnar, þar sem Hagkaup var áður. Þar má finna mjög fjölbreytt úrval jólavara, gjafavara, leikfanga, fatnaðaðar, rafmagnstækja og bóka svo eitthvað sé nefnt.Markaðurinn verður opinn að minnsta kosti fram til jóla og opinn eins og hér segir:
Virka daga til 18.30, til 19.30 á föstudögum, til 17 á laugardögum og 18 á sunnudögum. Frá 16. til 19. des. verður opið til kl. 20 og 20. til 22. des. til kl. 22. Opið verður til kl. 23. á Þorláksmessu.
