29. apr. 2002 : Babysam opnar heimasíðu

Verslunin BabySam hefur opnað vefsetur www.babysam.is þar sem hægt er að skoða allar vörur í bæklingnum sem kom út nú á dögunum ásamt hvað sé á döfinni hverju sinni.
 

29. apr. 2002 : Nýkaup verður Hagkaup og matvöruverð lækkar

Hagkaup opnar í Kringlunni þar sem verslun Nýkaupa var áður, enda vilja neytendur lægra vöruverð. Þessi ákvörðun mun leiða af sér umtalsvert lægra vöruverð í versluninni.
 

26. apr. 2002 : Listahátíð 27. apríl í BabySam

Laugardaginn 27. apríl ætlar BabySam að kynna nýja vörulistann í versluninni að Skeifunni 8, Reykjavík milli kl. 10-16.
 

22. apr. 2002 : Mikil viðbrögð við verðlækkunum Hagkaupa

Mikil viðbrögð hafa verið við verðlækkun Hagkaupa á yfir 700 vörutegundum sem var tilkynnt í síðustu viku. Samkvæmt Finni Árnasyni framkvæmdastjóra Hagkaup hefur verið mikið að gera í öllum verslunum Hagkaupa og ljóst að viðskiptavinir fagna þessu framtaki.
 

17. apr. 2002 : Hagkaup lækka verð! Yfir 2002 vörur hafa lækkað á árinu 2002

Fimmtudaginn 18. apríl munu Hagkaup lækka verð á yfir 700 vörutegundum til frambúðar.

 

16. apr. 2002 : Debenhams á Matur 2002

Sýningin Matur 2002 verður haldin helgina 18 - 21. apríl í knatthöll  Breiðabliks í Smáranum Kópavogi.
 

11. apr. 2002 : Vorútsala hjá Hagkaupum

Í dag hefst vorútsala hjá Hagkaupum og er þetta í fyrsta sinn sem hún er á þessum tíma.
 

8. apr. 2002 : Bónus 13. ára

Fyrsta Bónusverslunin var opnuð laugardaginn 8. apríl 1989 og á því 13.ára afmæli. Af því tilefni ætlar Bónus að bjóða vegleg afmælistilboð fram til 28. apríl n.k.
Verslanir Bónuss eru orðnar 17 talsins, 14 á höfuðborgarsvæðinu, ein á Akureyri, ein á Selfossi og ein á Ísafirði.
 

5. apr. 2002 : Risa útsala Útilífs

RISA ÚTSÖLUMARKAÐUR opnaði á föstudaginn kl. 13:00 í sumarbústaðnum (Tjaldaland)gegnt umferðamiðstöðinni 30-80% afsláttur.
 

3. apr. 2002 : Sumarið komið í Babysam.

Verið er að taka upp sumarvörurnar í Babysam í Skeifunni 8.
 

2. apr. 2002 : Margir hlupu fyrsta apríl í Bónus

Fréttastofa Stöðvar 2 fékk Bónus í lið með sér í gær, 1. apríl, til að fá landsmenn til að hlaupa í tilefni dagsins.
 




Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica