Framkvæmdastjórn
Forstjóri Haga
Finnur Árnason
Finnur hefur starfað hjá Högum (áður Baugi) frá stofnun fyrirtækisins árið 1998, undanfarin ár sem framkvæmdastjóri Hagkaupa. Finnur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk prófi í rekstrarhagfræði frá University of Hartford árið 1987. Finnur er kvæntur Önnu Maríu Urbancic, MS í viðskiptafræðum og eiga þau fjögur börn.
Netfang: fa@hagar.is
Fjármálastjóri Haga
Guðrún Eva Gunnarsdóttir
Guðrún Eva hefur starfað innan Haga (áður Baugi) frá árinu 2001. Fyrst hjá 10-11, þá hjá Sérvörusviði Haga og síðan á aðalskrifstofu Haga. Undanfarin ár hefur Guðrún Eva starfað sem fjármálastjóri innan Haga, nú síðast sem fjármálastjóri Hagkaups.
Guðrún Eva er viðskiptafræðingur að mennt en hún lauk prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002.
Netfang: geg@hagar.is