Aðalfundur 2013
Aðalfundur Haga hf. var haldinn föstudaginn 7. júní 2013 kl. 9:00 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi.
Meðfylgjandi má sjá niðurstöður aðalfundar Haga hf. sem haldinn var á 20. hæð í Turninum við Smáratorg þann 7. júní 2013 kl. 09:00. Tillögur fundarins voru samþykktar svohljóðandi:
1) Ársreikningur (dagskrárliður 2)
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda var lagður fram og samþykktur samhljóða.
2) Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)
Tillaga stjórnar Haga hf. um greiðslu arðs sem nemur 0,50 krónum á hlut var samþykkt samhljóða. Arðsréttindadagur verður 12. júní 2013, arðleysisdagur 10. júní 2013 og útborgunardagur 26. júní 2013.
3) Nýjar samþykktir félagsins (dagskrárliður 4)
Tillaga stjórnar Haga hf. um nýjar samþykktir félagsins voru lagðar fram og samþykktar samhljóða.
4) Þóknun til stjórnarmanna (dagskrárliður 5)
Tillaga stjórnar Haga hf. um óbreytt laun stjórnarmanna, þ.e. stjórnarformaður fær greitt kr. 500.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr. 250.000,- á mánuði var samþykkt samhljóða.
5) Starfskjarastefna (dagskrárliður 6)
Fyrir fundinum lá tillaga að starfskjarastefnu félagsins. Starfskjarastefnan var samþykkt samhljóða.
6) Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda (dagskrárliður 7)
Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins til næsta aðalfundar:
Árni Hauksson, kt. 250766-5569
Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969
Friðrik Hallbjörn Karlsson, kt. 180366-4909
Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369
Stefán Árni Auðólfsson, kt. 210772-4729
Fimm framboð bárust og var því sjálfkjörið. Fjórir frambjóðendur voru áður í stjórn félagsins. Guðbrandur Sigurðsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Stefán Árni Auðólfsson kjörinn í hans stað.
Samþykkt var samhljóða að endurskoðunarskrifstofan KPMG ehf., kt. 590975-0449, verði endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár.
7) Arðgreiðslustefna (dagskrárliður 8)
Fyrir fundinum lá tillaga að arðgreiðslustefnu félagsins. Arðgreiðslustefnan var samþykkt samhljóða.
______________________________________________________________________________________________________________
Dagskrá og tillögur aðalfundar 2013
_______________________________________________________________________________________________________________
