Frétt
09.02.2010
FRÉTTATILKYNNING
Reykjavík 4. febrúar 2010
Stjórn Arion banka hf. hefur í samvinnu við Haga hf. komist að þeirri niðurstöðu, að óska eftir skráningu fyrirtækisins í íslensku Kauphöllina og setja það þar með í söluferli. Stefnt er að því að skráningu ljúki fyrir lok ársins 2010. Jóhannes Jónsson og starfsmenn Haga hf munu vinna með bankanum að skráningu félagsins. Jóhannes verður áfram starfandi stjórnarformaður félagsins og Finnur Árnason forstjóri.
Í skráningunni felst að almenningur og fagfjárfestar munu geta keypt hluti í félaginu. Starfsfólki Haga býðst að kaupa 15% hlut, þar af Jóhannesi Jónssyni starfandi stjórnarformanni Haga allt að 10% hlut á sama gengi og öðrum fjárfestum.
Það sem mestu máli skiptir fyrir Haga er að nú fer af stað gegnsætt ferli sem mun skapa ró um félagið. Margir fjárfestar, bæði innlendir og erlendir, hafa sýnt áhuga á félaginu, enda er hér um að ræða eitt öflugasta verslunarfyrirtæki landsins. Stjórnendur Haga vonast til að skráning félagsins verði til þess að auka áhuga á íslensku Kauphöllinni og ekki síður íslensku atvinnulífi.
Rekstur Haga hefur gengið vel á erfiðum tímum, félagið hefur staðið við allar sínar skuldbindingar og er eitt af fáum félögum sem hefur greitt upp skuldabréfaflokk, skráðan í Kauphöll Íslands frá bankahruni. Staða félagsins er því sterk á þessum tímamótum. Sérvöruhlið félagsins er að vaxa og styrkjast og vörumerkjasafn félagsins er glæsilegt.
„Það er fyrir öllu að nú hefur óvissu um framtíð Haga verið eytt,“ segir Jóhannes Jónsson starfandi stjórnarformaður Haga og stofnandi Bónuss. „Það er einlæg von mín, að nú skapist vinnufriður í kringum Haga, svo starfsmenn geti einbeitt sér að því sem þeir gera best, að reka fyrirtækið og þjóna viðskiptavinum sínum. Tækifærin eru fjölmörg og spennandi tímar framundan. Nú sitja allir við sama borð og söluferlið eins opið og gegnsætt og hægt er,“ segir Jóhannes Jónsson.
Um Haga
Hagar er verslunarfyrirtæki með starfsemi á Íslandi. Undir Haga fellur Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Millen, All Saints, Dayog Warehouse. Jafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur.
Fyrirtæki Haga eru öll rekin sem sjálfstæð fyrirtæki og hafa þess vegna ólík rekstrarform og ólíka menningu.
Félagið hefur notið mikillar velvildar viðskiptavina og hefur Bónus verið kosið vinsælasta fyrirtæki landsins síðastliðin sjö ár með miklum yfirburðum. Á matvörumarkaði hefur Bónus ávallt boðið lægsta vöruverðið undanfarin 20 ár, Hagkaup mesta vöruúrvalið og þjónustuna og 10-11 lengstan opnunartíma. Þessi þrjú fyrirtæki félagsins hafa forystu á íslenskum markaði, hvert á sínu sviði.
Til baka