Frétt

08.10.2009

Endurfjármögnun Haga

Hagar hf. hafa undirritað „Term Sheet“ við Nýja Kaupþing banka hf. og NBI hf. um endurfjármögnun félagsins með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki lánanefnda bankanna. Fjármögnunin mun tryggja að Hagar hf. greiði skuldabréfaflokk félagsins á gjalddaga hans 19. október 2009.

Í gær var ákveðið á aðlafundi Hússmiðjunnar hf. að færa hlutafé hennar niður í núll. Bókfært verðmæti hlutafjárins hjá Högum hf. hefur verið afskrifað. 

Finnur Árnason
Forstjóri / CEO
Hagar hf.


Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi