Frétt

20.02.2009

Athugasemd vegna verðkönnunar ASÍ sem birtist í morgun

Enn einu sinni eru starfsmenn verðlagseftirlits ASÍ uppvísir að því að skrá hjá sér röng verð í  verðkönnun sem þeir framkvæma. Í nýjustu könnun ASÍ kemur fram að verðmunur á pasta sé 348% þar sem hæsta verð sé í 10-11. Í þessari könnun er verið að bera saman ódýrasta valkost í pasta en í 10-11 var tekinn dýrasti valkostur í stað þess ódýrasta. Dýrasti valkosturinn kostar 578 kr/kg en ódýrasti valkostur í 10-11 kostar 329 kr/kg., báðar þessar vörur voru í boði þegar könnunin var gerð. Þessi staðreynd gerir það að verkum að 10-11 er ekki dýrust verslana í þessum flokki og er ekki oftast með hæsta verðið í verðkönnun ASÍ. Þessu til viðbótar er ódýrasta pastað í þessari könnun verð fyrir 500gr en ekki 1 kg. Hæsta og lægsta verð á pasta í þessari könnun er því kolvitlaust og gefur neytendum á engan hátt rétta mynd af verði á markaði. Það skal tekið fram að villurnar í könnuninni eru fleiri en ekki verður farið nánar í þær hér.

Hagar og tengd félög hafa síðustu ár gagnrýnt ASÍ fyrir vinnubrögð sín í tengslum við þessar kannanir. Villa eins og sú sem gerð var í þessari könnun leiðir af sér ranga niðurstöðu og villandi fyrirsagnir sem skaða fyrirtæki á markaði. Við viljum vönduð vinnubrögð sem gefna neytendum rétta mynd af markaði. ASÍ hefur sýnt það ítrekað að þeim er ekki treystandi fyrir því.

Kveðja

Sigurður Reynaldsson
Framkvæmdastjóri 10-11


Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi