Frétt

07.01.2009

Góðar móttökur á 24 tíma stórmarkaði í Skeifu.

Á sex vikum sem Hagkaup Skeifunni hefur verið opið allan sólarhringinn hafa viðskiptavinir sýnt það að þeir kunna vel að meta þessa auknu þjónustu. Fjöldi fólks sækir verslunina fram til kl. 2 um nætur og svo hefst ösin aftur upp úr kl. 6. Vaktavinnufólki líkar t.d. vel að geta verslað á þeim tíma sólarhrings sem því hentar.

Hagkaup í Skeifunni er fjögur þúsund fermetra stórmarkaður sem býður alla almenna matvöru, en til viðbótar er þar að finna breitt úrval sérvöru. Þannig er Hagkaup í Skeifunni besti áfangastaður þeirra sem eru í verslunarhugleiðingum utan hefðbundins opnunartíma verslana.

Þetta eru megin ástæður þess að ákveðið hefur verið að halda áfram með þessa ánægjulegu nýbreytni. Vöruúrval verður lagað enn betur að þörfum þeirra sem versla utan venjulegs opnunartíma og öll þjónustu endurbætt. Það verður því ávallt gaman og þægilegt fyrir viðskiptavini að renna við í Skeifunni ef þá vanhagar um eitthvað.

Hagkaup er leiðandi á íslenskum smásölumarkaði og býður mesta úrval hérlendis í sérvöru og matvöru. Hjá fyrirtækinu starfa 850 manns í tíu verslunum um land allt sem dag hvern leggja sig alla fram um að uppfylla væntingar viðskiptavina um eina ferð, betra verð.


Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi