Frétt

23.12.2008

10-11 og Bónusvídeó í samstarf

10-11 skrifaði nýlega undir samstarfssamning við Bónusvídeó.  Þessi samningur mun gera viðskiptavinum 10-11 kleift að slá tvær flugur í einu höggi, því nú geta viðskiptavinir 10-11 verslað matvöru og leigt sér mynd í leiðinni.  Einnig geta viðskiptavinir Bónusvídeó nú leigt sér mynd og um leið valið úr meira úrvali að sælgæti og snakki en áður, sem er ómissandi með góðri mynd.  Bónusvídeó hafa frábæra heimsíðu þar sem hægt er að skoða og panta þær myndir sem fólk óskar sér einnig hafa þeir útfært einfaldar leiðir í gegnum snertiskjái í myndbandaleigum sínum til að leigja sér mynd.   
 
Með samvinnu fyrirtækjanna er nú hægt að leigja mynd á netinu og sækja í verslun 10-11 eða nýta sér snertiskjái í verslun 10-11 til að finna réttu spóluna!  Til að byrja með verður þessi þjónusta fáanleg í eftirtöldum verslunum 10-11:  Eggertsgötu, Engihjalla, Glæsibæ, Grímsbæ, Hjallabrekku, Laugalæk, Lágmúla og Staðarbergi.
Hver veit svo hvað framtíðin ber í skauti sér!

Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi