Frétt
03.12.2008
BT opnar á ný
Í kjölfar kaupa Haga á helstu eignum BT verslana var ráðist í vinnu við skipulagningu nýs reksturs. Ákveðið var að opna tvær verslanir undir vörumerkinu BT, auka verulega á úrval í stafrænnar afþreyingar ásamt því að lækka verð.
Verslanirnar tvær voru opnaðar laugardaginn 29.nóvember, annars vegar í Smáralind og hinsvegar í Glerárgötu á Akureyri.
Rekstrarstjóri BT er Jón Andreas Gunnlaugsson.
Til baka