Frétt

21.08.2008

ASÍ á villigötum

Undanfarna daga hefur starfsfólk ASÍ brugðist harkalega við niðurstöðu dómkvaddra matsmanna, sem Héraðsdómur Reykjavíkur kvaddi til, til þess að fara yfir hversu mikið verðlag lækkaði í 10-11 1. mars 2007, þegar virðisaukaskattur á matvæli lækkaði í 7%.  Niðurstaða matsgerðarinnar hefur opinberað ónákvæm vinnubrögð verðlagseftirlits ASÍ og sýnt fram á að þau endurspegli ekki að neinu leyti verðbreytingar á matvörumarkaði hér á landi.  Viðbrögð ASÍ koma á óvart, ekki síst sú nálgun þeirra að segja að niðurstaða matsmanna, sem Héraðsdómur Reykjavíkur kvaddi til verksins komi verðlagseftirliti ASÍ ekkert við.  Niðurstaða matsgerðarinnar er falleinkunn á vinnubrögð verðlagseftirlits ASÍ og því með ólíkindum að því sé haldið fram að hún komi ASÍ ekki við.
 
Málavextir eru þeir að ASÍ sendi frá sér fréttatilkynningu þann 16. apríl 2007, þar sem sagði að verðlækkun í verslunum 10-11 frá febrúar til mars árið 2007 hefði verið 4,4%.  Þetta var nokkuð minni lækkun en vænta mátti vegna breyttrar virðisaukaskattsprósentu á matvæli.  Hagar mótmæltu þegar í stað þessari fréttatilkynningu, þar sem hún var röng og augljóst að m.a. hafði verið gerð meinleg villa við framkvæmd hennar. 
 
Í fréttatilkynningu ASÍ frá 16. apríl 2007, sem enn er á vef Alþýðusambandsins, er tafla sem sýnir verðbreytingar hinna ýmsu vöruflokka nokkurra verslana á umræddu tímabili.  Glöggt má sjá í umræddri töflu að í vöruflokknum sykur, súkkulaði og sætindi segir ASÍ að verðlag hafi HÆKKAð um 8,9% í verslunum 10-11, en ekki lækkað (sjá töflu).  Virðisaukaskattur á sykri, súkkulaði og sætindum lækkaði úr 24,5% í 7% auk þess sem vörugjöld voru lögð af.  Því hefði mátt vænta mikillar lækkunar á þessum vöruflokki.  Hækkun var fráleit.  Á þessum tíma var m.a. gagnrýnt að gos og sælgæti lækkaði meira en almenn matvara, vegna framangreindra skýringa.  Augljóst er því að ASÍ gerði mistök, þar sem 8,9% lækkun var skráð sem 8,9% hækkun og viðurkenndu starfsmenn ASÍ það strax þegar bent var á villuna.         

Tafla úr fréttatilkynningu ASÍ frá 16. apríl 2007 tekin af vef ASÍ 20. ágúst 2008

Það var þó ekki fyrr en daginn eftir, þann 17. apríl sem ASÍ sendi frá sér leiðrétta fréttatilkynningu, þar sem sagði að verðlag í 10-11 hefði lækkað um 6,1%.  Aftur mótmæltu Hagar fréttatilkynningunni, sem rangri og að leiðréttingin nægði ekki til þess að sýna fram á þá lækkun sem sannarlega hafði orðið í verslunum 10-11 á umræddu tímabili.  Hagar litu á báðar þessar fréttatilkynningar sem aðför að orðspori 10-11, sem hafði sagt að öll skattalækkunin kæmi til með að skila sér til viðskiptavina strax, sem hún og gerði.
 
ASÍ neitaði að leiðrétta mistök sín.  Hagar leituðu því í kjölfarið til Héraðsdóms Reykjavíkur og óskuðu eftir að matsmenn yrðu dómkvaddir til þess að komast að réttri niðurstöðu og hreinsa þar með orðspor sitt í þessu máli.  Dómurinn kvaddi til tvo matsmenn, löggiltan endurskoðanda og dósent við Háskóla Íslands.  Matsmennirnir voru óbundnir að öllu leiti við öflun gagna og gerðu þær skoðanir á gögnum og tölvukerfum 10-11 sem þeir óskuðu eftir.  Þeir höfðu algjörlega frjálsar hendur til þess að komast að réttri niðurstöðu.  Einnig leituðu þeir til ASÍ, sem vildi ekki gefa upplýsingar um „aðferðafræði“ sína við verðlagseftirlit og ekki veita þeim aðgang að gögnum sínum.  Vönduð matsgerð sem nú liggur fyrir ber matsmönnum gott vitni og er aðgengileg á vefnum hagar.is fyrir þá sem vilja kynna sér innihald hennar.
 
Meginniðurstaða matsmanna er eftirfarandi: „Það er samdóma álit matsmanna að sú raunlækkun í prósentum talið á útsöluverði verslana 10-11 sem varð við breytingu á virðisaukaskattslögum þann 1. mars 2007 hafi verið í fullu samræmi við það sem vænta mátti.  Þannig lækkaði „innkaupakarfa“ matvæla 10-11 verslananna um 8,99% en vænt lækkun var 8,98%“.   Þessi niðurstaða þýðir að viðskiptavinir 10-11 nutu að fullu lækkunar á virðisaukaskatti, sem er þvert á það sem ASÍ hafði haldið fram í fréttatilkynningum sínum.  
 
Starfsfólk ASÍ hefur í kjölfar þessarar niðurstöðu reynt að gera hana tortryggilega og reynt að slá ryki í augu almennings.  Þannig hafa bæði framkvæmdastjóri ASÍ og verkefnisstjóri verðlagseftirlitsins lagt áherslu á að Hagar hafi kallað til matsmenn, sem eru ósannindi.  Héraðsdómur Reykjavíkur dómkvaddi matsmenn að beiðni Haga, svo hlutleysi væri tryggt.  Dómkvaddir matsmenn eru óháðir fagaðilar og á engan hátt tengdir aðilum málsins.  Til að gera lítið úr vinnu matsmannanna sagði framkvæmdastjóri ASÍ í fjölmiðlum að Hagar hefðu látið matsmenn “fá útprentaða verðlista og beðið þá að reikna”.  Þetta eru einnig ósannindi.  Dómkvaddir matsmenn láta ekki segja sér fyrir verkum, þeir afla þeirra gagna sem þarf.  Í Kastljósi þann 18. ágúst sagið Henný Hinz verkefnisstjóri ASÍ að þegar umræddar fréttatilkynningar voru sendar út, þ.e. 16. og 17. apríl 2007 hafi verið í gildi samkomulag um verklag verðkannana á milli verslunarinnar og ASÍ.  Enn og aftur er um að ræða ósannindi.  Því samkomulagi sem Henný vísar til var sagt upp í desember árið 2005 eftir að hafa verið í gildi í aðeins 3-4 mánuði.   Hvernig stendur á því að launþegasamtök meginþorra starfsfólks Haga kemur fram með þessum hætti gagnvart fyrirtækinu og starfsfólki þess?  Hvað gengur framkvæmdastjóra ASÍ og verkefnisstjóra ASÍ til með þessum vinnubrögðum og ósannindum?   Telur ASÍ virkilega að launþegum og neytendum sé unnið gagn með slíkum vinnubrögðum?  Hvernig getur ASÍ alhæft um alla verðþróun í 10-11 með því að heimsækja eina verslun af 25 og kanna verð á 50 – 100 vörum af 3.500 sem eru þar til sölu.  ASÍ kannar 1,5% - 3% af vöruvali verslunarinnar.  Staðreyndin er að tölfræðileg skekkjumörk aðferða þeirra eru alltof mikil til að fullyrðingar þeirra standist.
 
Viðskiptaráðherra hlýtur í framangreindu ljósi að endurskoða fjárframlög til þessa verkefnis.  Vinnubrögð verðlagseftirlits ASÍ standast enga faglega skoðun.  Fagleg vinna dómkvaddra matsmanna hefur staðfest það svo ekki verður um villst að sú aðferð sem ASÍ notar við gerð verðkannanna endurspeglar ekki að neinu leiti raunverðbreytingar í verslunum. Við slík vinnubrögð verður ekki unað lengur.
 
Finnur Árnason
Forstjóri / CEO
Hagar hf.


Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi