Frétt

29.02.2008

Ný tegund 10-11 verslana 10-11 mini

Í febrúar opnaði verslunarkeðjan 10-11 tvær nýjar búðir undir nafninu 10-11 mini. Um er að ræða töluvert minni búðir en hinar hefðbundnu 10-11 verslanir og má því helst líkja þeim við söluturn með gott vöruúrval.
 Fyrstu búðirnar voru opnaðar í suðurenda flugstöðvar Leifs Eiríkssonar  og í verslunarmiðstöðinni Kringlunni.  Í þessum búðum geta viðskiptavinir fengið sér pylsur, ís, heitt bakkelsi og kaffi, og í leiðinni valið úr um 400 mikilvægum grunnvörum til heimilisins.  Hér er að ferðinni ný og spennandi útfærsla á verslun sem mun koma til með að auka flóru verslunar enn frekar hér á landi.

Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi