Frétt
31.10.2007
Árshlutareikningur Haga hf.
Árshlutareikningur félagsins er nú í fyrsta sinn gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Innleiðing staðlanna hefur óveruleg áhrif á reikningsskil félagsins.
Lykiltölur í millj. kr. – samstæða
• Hagnaður tímabilsins 1. mars til 31. ágúst 2007 nam 715 millj. kr. en tap fyrir sama tímabil árið áður nam 44 millj. kr.
• Rekstrartekjur tímabilsins 1. mars til 31. ágúst 2007 námu 25.474 millj. kr. en námu 22.241 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður.
• Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.068 millj. kr. en námu 23.616 millj. kr. í febrúarlok 2007.
• Eigið fé félagsins í lok tímabilsins nam 8.965 millj. kr. en nam 6.538 millj. kr í febrúarlok 2007.
• Eiginfjárhlutfall félagsins var 34,4%
Fyrirtæki Haga eru eftirfarandi:
Bónus Debenhams
Hagkaup Ferskar kjötvörur
10-11 Noron (Zara)
Aðföng Res
Hýsing Íshöfn
Útilíf BananarRes er með vörumerkin: Karen Millen, Warehouse, All Saints og Day
Íshöfn er með vörumerkin: Topshop, Oasis, Jane Norman, Evans, Dorothy Perkins og Coast
Hlutdeildarfélög eru: Max , Húsasmiðjan og SMS p/f
Stöðugildi hjá félaginu í lok tímabilsins námu 1.615.
Staða og horfur
Nokkur bati varð á rekstri félagsins á tímabilinu og eru horfur í rekstri félagsins góðar.
Endurskoðun
Árshlutauppgjörið hefur verið kannað af endurskoðendum félagsins.
Til baka