Hagkaup

Hagkaup er leiðandi smásölufyrirtæki sem býður breitt úrval af vörum til daglegra þarfa í matvöru, fatnaði, húsbúnaði og tómstundavöru.

Í matvöru býður Hagkaup um 8 þúsund vöruliði. Vöruvelta í verslunum Hagkaups er hröð og vörulager lítill að umfangi miðað við heildarsölu. Fyrirtækið leitast við að stunda starfsemina á það hagkvæman hátt að viðskiptavinir þess geri ávallt betri kaup í Hagkaupi. Kannanir sýna ótvírætt að viðskiptavinir telja að í Hagkaupum sé "skemmtilegast að versla".

Hagkaup opnaði stærstu verslun landsins í Smáralind haustið 2001. Þar er að finna gríðarlegt úrval af mat- og sérvöru eða yfir 50 þúsund vöruliði, ásamt sérþjónustu eins og skósmið, fatahreinsun, kaffihús og fleira. Verslanir Hagkaups eru tíu, þar af sjö á höfuðborgarsvæðinu.

Skeifan og Garðabær eru opnar allan sólahringinn.


Nánari upplýsingar á vefsíðunni: http://www.hagkaup.is/

Hagkaup - Holtagörðum - Holtavegi - 104 Reykjavík - sími: 563-5000 - fax: 568-0320 - vefstjori@hagkaup.is

Til baka


Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi