Bananar
Bananar ehf voru stofnaðir þann 18 júní 1955.
Fyrstu árin fólst starfsemi Banana ehf einvörðungu í því, eins og nafnið gefur til kynna, að flytja inn og þroska banana. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag eru Bananar ehf langstærsta innflutnings- og dreifingarfyrirtæki landsins í ávöxtum og grænmeti og er í reynd eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins.
Bananar vilja mæta þörfum og kröfum viðskiptavina sinna um góð gæði og fjölbreytt vöruúrval. Til þess að sinna þessum þörfum höfum við bein viðskiptasambönd út um allan heim og má þar nefna Kína, Brasilíu, Suður Afríku, Kanada, Chile, Argentínu, Holland USA og Spán. Viðskiptum er beint til þeirra landa þar sem uppskera á ávöxtum og grænmeti er best hverju sinni. Vörurnar eru teknar vikulega með skipi og daglega flugleiðis. Íslenskt grænmeti berst til okkar daglega.
Nánari upplýsingar á vefsíðunni: http://www.bananar.is
Súðarvogi 2e - 104 Reykjavík - Sími 525-0100 - orvar@bananar.is
Til baka